R frá grunni
Venjulegt verð 2.750 kr
R frá grunni er kennslurit í tölfræðiforritun í R fyrir byrjendur. Bókinni er ekki ætlað að vera kennslubók í tölfræði og því gert ráð fyrir að lesandinn hafi grunnþekkingu á því sviði. Fjallað er um vinnulag í R og RStudio, hvernig gögn eru lesin inn í R og aðlöguð að þeirri úrvinnslu sem framkvæma á, myndræna framsetningu, lýsandi tölfræði, helstu líkindadreifingar og tölfræðipróf. Að lokum er fjallað um fervikagreiningu (ANOVA), aðhvarfsgreiningu og tvíkosta aðhvarf.
Höfundar:
Anna Helga Jónsdóttir og Sigrún Helga Lund