Litir í prentun - RGB / CMYK
Þar sem litir í prentun geta oft verið frábrugðnir þeim litum sem sést á skjá, er gott að hafa eftirfarandi atriði í huga:
- Prentlitir og skjálitir nota ekki sama litakerfi og því getur verið tölverður munur á þeim lit sem sést á skjá og þeim litum sem prentaður er. Best er að gera prufur hjá prentsmiðju áður en framleitt er.
- Forðast skal að hengja prófíla á myndir
- Upplausn á myndum á helst ekki að vera lægri er 150dpi
- Myndir teknar af vefsíðum eru sjaldnast nægilega góðar í prent
- Aldrei nota PANTONE liti, þeir breytast oft töluvert í prentun
- Myndum er best að skila í RGB, það borgar sig ekki breyta þeim í CMYK. Allar nánari upplýsingar um RGB vinnuferlið er hægt að nálgast á heimasíðu Iðunnar hér:
- https://idan.is/fraedsla/prent-og-midlunargreinar/prentstillingar/
- Litur pappírs getur haft áhrif á prentliti