Bókaprentun, kiljur
Venjulegt verð 0 kr
Háskólaprent er með mjög fullkomin búnað til að prenta kiljur, í því upplagi sem hentar.
Okkar tækni gerir kleift að prenta eingungis það magn sem þarf og bæta svo við þegar bækur seljast og hentar því mjög vel í útgáfu þar sem ekki er vitað hversu margar bækur muni seljast.
Við höfum prentað: Kennslubækur, ljóðabækur, handbækur, skáldsögur, uppflettirit, eða flestar gerðir af bókum.
Við notum nýjustu límingartækni (PUR) sem límir betur en eldri gerðir af lími. Þetta þýðir að bækur detta síður í sundur þegar þær eru mikið lesnar og þola meira hnjask.
Hagnýtar upplýsingar
- Það er ekkert lágmarkmagn, en það er oftast ódýrara að prenta stærri upplög
- Auðvelt er að endurprenta og því þarf ekki að sitja uppi með mikið af ónotuðu prentefni. Því sparar stafræn prentun oft umtalsverðar fjárhæðir í lagerkostnaði