Bæklingar
Háskólaprent prentar bæklinga í öllum stærðum og gerðum og á ýmsar tegundir pappírs.
Ýmis konar bæklingar eru fáanlegir, einblöðungar brotnir í miðju, einblöðungar tvíbrotnir (túristabæklingar), bæklingar sem eru margar síður, td brotið í miðju og heft.
Oft eru bæklingar prentaðir á hálfglansandi 170 gr. pappír, eða 150 gr. mattan pappír. Best er að vera í sambandi tímanlega til að velja pappír.
Hagnýtar upplýsingar
- Afgreiðslutími 1-2 dagar
- Lámarksmagn 1 bæklingur
- Best að senda sem PDF í réttri stærð og í réttri röð (ekki búið að sameina á blaðsíður)
- Æskilegt að hafa texta og aðrar upplýsingar að minnsta kosti 5 mm frá brún
- Ef litur á að ná út í jaðar þarf litur að blæða út fyrir jaðarinn
Algengar stærðir
- Túristi (3 x 10cm x 21cm)
- A5 (21cmx15cm)
- A5 4-40 blaðsíður
- A4 4-40 blaðsíður
- Kassi (15cm x 15cm)
- A6 (15x10cm)
- A4 (21x30cm)