{"product_id":"rettarsalfraedi","title":"Réttarsálfræði","description":"\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eRéttarsálfræði\u003c\/strong\u003e er fyrsta íslenska kennslubókin sem er sérstaklega skrifuð fyrir framhaldsskóla um þetta ört vaxandi fræðasvið. Bókin veitir heildstæða yfirsýn yfir hvernig sálfræðileg þekking er nýtt innan réttarkerfisins og hvernig hún getur stuðlað að betri skilningi á glæpum, afbrotum og mannlegri hegðun.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ bókinni er meðal annars fjallað um sögu réttarsálfræðinnar, rannsóknarsálfræði, vitnisburð, minni, falskar játningar, afbrotamörkun, geð- og taugaþroskaraskanir í réttarkerfinu, vinnu með þolendum og gerendum, siðferðileg álitamál, áhrif fjölmiðla og samfélagsmiðla, íslenska sem erlenda fræðinga og stöðu réttarsálfræðinnar á Íslandi. Fræðileg umfjöllun er tengd raunverulegum sakamálum, nýlegum rannsóknum og íslensku samhengi.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBókin er byggð upp sem kennslugagn með skýrum samantektum og QR-kóðum sem vísa á verkefnabanka og viðbótarefni, svo sem hlaðvörp, fyrirlestra, heimildamyndir, myndbönd og annað. Hún styður við gagnrýna hugsun, sjálfstæð vinnubrögð og umræðu um siðferðileg álitaefni og hentar jafnt til kennslu sem sjálfstæðs náms.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eRéttarsálfræði \u003c\/strong\u003eer ætluð nemendum, kennurum og öllum þeim sem vilja öðlast dýpri skilning á samspili sálfræði og réttarkerfisins.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBók þessi var styrkt af Þróunarsjóði námsgagna hjá Rannís.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e","brand":"Háskólaprent","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":50453405270119,"sku":null,"price":9990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1551\/1755\/files\/Rettarsalfreadi.jpg?v=1791991625","url":"https:\/\/www.haskolaprent.is\/products\/rettarsalfraedi","provider":"Háskólaprent","version":"1.0","type":"link"}