Umhverfisstefna Háskólaprents
Háskólaprent leggur ríka áherslu á umhverfismál.
- Að öll framleiðsla uppfylli ítrustu kröfur um lágmarks umhverfisáhrif
- Að endurnýta og endurvinna allan úrgang sem fellur til í framleiðslunni
- Að umhverfisáhrif framleiðslunnar séu í lágmarki
- Að tæki og búnaður uppfylli ströngustu kröfur um lágmarks orkunotkun
og endurvinnslu - Að uppfylla allar kröfur sem settar eru í gildandi lögum og reglugerðum.
Til þess að vara eða þjónusta geti hlotið Svansvottun verður Norræna
Umhverfismerkjanefndin að hafa mótað kröfur fyrir viðkomandi vöru- eða
þjónustuflokk. Svanurinn er merki af týpu I (ISO 14024) og er einn af
stofnmeðlimum Global Ecolabelling Network.
Kröfur Svansins tryggja að Svansmerkt vara er betri fyrir umhverfið og heilsuna,
meðal annars með því að:
- uppfylla strangar kröfur um efnainnihald og lágmörkun á notkun hættulegra efna við þjónustu og framleiðslu vöru.
- tryggja að ekki séu notuð ofnæmisvaldandi ilmefni við framleiðslu á Svansmerktum hreinlætis– og snyrtivörum auk þess sem þekkt krabbameinsvaldandi og hormónatruflandi efni eru algerlega bönnuð
- herða kröfurnar reglulega og eru því Svansmerktar vörur og þjónusta í stöðugri þróun.
- skoðaðir eru allir þættir lífsferils vörunnar þar sem efnainnihald og umhverfisáhrif hvers þáttar er metið.