Skil á verkum
Við reynum alltaf að skila verkum eins hratt og auðið er, fyrir eins litinn pening og hægt er. Hér að neðan eru nokkur atriði sem geta hjálpað okkur til að þjóna þér sem best.
Skil fyrir prentun
Það eru ýmsar leiðir til að senda okkur verkefni, það er hægt skila inn efni jafnt á pappír sem tölvutæku formi, geisladisk eða minnislykli eða bara hvað sem hentar best.
Það líka er hægt að senda okkur tölvupóst á verk@haskolaprent.is, einnig er hægt að hlaða upp skjölum á http://www.haskolaprent.is/ftp
Best er að skrá sig inn sem gestur
Hugbúnaður
Við hjá Háskólaprent kunnum á flest forrit sem notuð eru við að búa til og skila gögnum til prentunar. Sum forrit eru betri en önnur, en það hentar okkur best á fá skjöl á PDF formi.
PDF SKJÖL
Það hentar okkur mjög vel að fá PDF skjöl og það verður að vanda til við gerð þeirra. Best er að nota forrit frá Adobe og stilla það á hámarksgæði, eða sækja þessar stillingar:
//haskolaprent.is/pdfstillingar.zip
Það er líka hægt að hlaða niður ýmsum ókeypis forritum til að búa til PDF skjöl td. er PDF creator hentugur fyrir flesta einfaldari vinnslur. (//sourceforge.net/projects/pdfcreator/)
Ef þér vantar hjálp við gerð PDF skjala hafðu samband við okkur og við hjálpum þér fúslega.
MICROSOFT WORD SKJÖL
Microsoft Word er mjög vinsælt forrit til að skrifa ýmis konar efni. Hins vegar þarf að passa sig í ýmsum hlutun þegar skilað er til okkar.
Blaðsíðustærð
Alltaf að kanna hvort rétt blaðsíðustærð sé valin, en eitt algengesta vandamál okkar er að fá gögn sem eru sett upp í röngum stærðum.
Ef skila á ritgerðum þá er best að sækja sniðmát sem gefin eru út af viðkomandi deildum. Hægt er að sækja sniðmát hér:
//haskolaprent.is/snidmat.zip



